Hnífur, óþ. notk.
1600 - 1700

In preservation at
National Museum of Iceland
Hnífur, ekki heill:
skaptið steypt úr kopar, 7,5 cm. að l., br. um 2, er það líkneski af karlmanni
á stuttbuxum með verju við vinstri hlið, húfu allháa, eða hatt lingerðan,
á höfði: hann heldur báðum örmum um eitthvað á brjósti sjer, kann að vera
belgpípa, sem hann leikur á. Blaðið er úr járni, hefur verið eineggjað
og þunngert, og er allur fremri hluti þessi brunninn af: að eins 3,8 cm.
eptir. Sennilega mathnífur frá 17. öldinni öndverðri. - Sendur
safninu til kaups 15. 7. 1902, en ekki keyptur nje skrásettur eða tölumerktur
fyr en nú, eptir að sendanda, herra Eyjólfi Guðmundssyni í Hvammi, hafði
verið sendur fyrir hann Leiðarvísir 16. 10. 1915. - Eyjólfur skrifar
með hnífnum að hann sje fundinn úti í flóa, við eða nálægt þjóðveginum.
- Mörg hnífskepti til önnur í safninu með mannslíkneskjum, steypt
úr kopar: öll útlend að gerð.
Main information
Donor: Eyjólfur Guðmundsson
Dating
1600 - 1700
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 7352
"Museumnumber b": 1916-335
Dimensions
7.5 x 2 x 0 cm
Lengd: 7.5 Breidd: 2 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Hnífur, óþ. notk.