Skautföt

In preservation at
National Museum of Iceland
Skautföt, skauttreyja og samfella sem tilheyrðu áður systur gefanda, frú Margrjeti, konu Halldórs sýslumanns Bjarnasonar. Fötin eru úr svörtu klæði og saumuð af frú Margrjetu sjálfri af mestu snilld, samfellan með silki, skatteruð með ýmsum litum*, og treyjan með gullvír, baldýruð ágætlega. Hún er að l. í bakið 38,5 cm., en samfellan er 103,5 að l. og 320.5 að vídd neðst. Margrjet var fædd 19.jan. 1857, en dó 29. sept. 1913. Þær systur voru dætur Egils Jónssonar, bókbindara í Reykjavík. *Þetta er sama mynstur, og mjög svipaðir litir, og er á samfellu nr. Þjms. 8037. Í skráningu hennar segir að mynstrið sé annað hvort eftir Sigurð Guðmundsson málara eða Benedikt Gröndal.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: 10550-2 "Museumnumber b": 1929-94
Dimensions
103.5 x 320.5 x 0 cm Lengd: 103.5 Breidd: 320.5 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Skautföt