Knipliskrín
1833

In preservation at
National Museum of Iceland
Knippliskrín, smíðað
úr furu og málað grænt og með rauðum strikum að utan og framan, og
klætt rósóttu damaski, dökkbláu með mógrænum blómum, að ofan. botnflöturinn
er að st. 38,6 x 22,7 cm., en yfirbyggingin, með koddanum, er 45,4 x 34
cm., og er þetta knippliskrín þannig miklu stærra en önnur knippliskrín,
sem áður hafa komið á safnið. Hæðin er að framan 16,5 cm. undir burst og
hún 14, en að aftan eru 4 cm. undir burst, eða koddann. Inn í burstina
að framan gengur skúffa, 24,2 að l., 8,5 - 8,7 að br. og 4,1 -5,5 að h.:
eru í henni 14 knipplar eins, l. um 8,5 (flestir), og 1 stakur, annars
konar, l. 8,7, tálgaður til - hinir renndir úr bæki. Fyrir neðan burstina,
sem stendur um 5 cm. fram-yfir sjálft skrínið, undirbygginguna, er hurð
að framan: er á henni, málað með rauðum lit, ártalið 1833, og lykkja dráttur
neðan- undir, en á burstinni uppi-yfir er málaðir stafirnir E. Th., sinn
hvoru megin skúffunnar, og uppi yfir henni rós. - Átti frú Elín Thorstensen,
kona Jóns landlæknis, skrínið í fyrstu. - Typpið er úr skúffunni og skráin
í hurðinni skemmd.
Main information
Dating
1833
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 11063
"Museumnumber b": 1930-480
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Knipliskrín