Brjóstnæla
900 - 1000

In preservation at
National Museum of Iceland
Tvö nisti eða spennur (möttulskildir) úr bronzi (kopar blending). Þau eru sporöskjulöguð og hvelfd. Í þeim báðum innanverðum hefir verið járnþorn, til þess menn gæti nælt saman með öðrum þeirra klæði sín, ef vildi, eða haft þau fyrir feldardálka. Sextán göt eru boruð gegnum röndina á þeim, til þess hægt væri að sauma þau á klæði sín til skarts, ef vildi: má af því sjá, að það eru möttulskildir, er festir voru á möttulinn, þar sem tygillinn var festur í. Þegar skildir þessir fundust, loddi enn grænt klæði (af möttli?) innan í öðrum þeirra eða báðum. Ofan á skjöldunum er laus grind, sem negld er á með fjórum járnnöglum. Grindin er öll gagnskorin með derkamyndum og auk þess með tveim mannshöfðum með stórum kömpum. Grindin hefir verið með gyllíngu og platan undir fögur og gyllt. Á hliðunum eru 8 ferhyrníngar silfraðir(?), og eru á milli drekamyndir gylltar, og nokkur drekahöfuð silfruð eða með silfurlit neðst á röndinni. Skildirnir eru 4 þumlúngar og 2 línur á lengd, en 3 1/2 þumlúngur á breidd.
Main information
Dating
900 - 1000
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: 96-a
"Museumnumber b": 1864-54-1
Dimensions
10.2 x 8.9 cm
Lengd: 10.2 Breidd: 8.9 cm
Place
Staður: Þjórsárdalur/Lausafundir, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Þjórsárdalur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Keywords
Keyword: Brjóstnæla
References
Kristján Eldjárn. Kuml og haugfé. Reykjavík 2000, bls. 81, 359 og 371-372.





