Þorn, skráð e. hlutv.
900 - 1000

In preservation at
National Museum of Iceland
Sylgja úr bronzi, eða ein tegund
af feldardálk. Það var stór hríngur með tveim hnúðum og opinn á einn
veg, en hann var brotinn er hann fannst. Yfir um hrínginn lá stórt
þorn með stórum hnúð, og typpi aptur úr að ofanverðu, þar sem hríngurinn
lék í þorninu. Nú er hríngurinn týndur og þornið brotið, og er að
eins eptir helmíngurinn, sem er efri parturinn, og er hann 2 þumlúngar
og 7 línur. Far hafði verið í þornið, slitið eptir hrínginn, og um
það hafði brotnað, og muna menn, að þornið var nær hálfu lengra en það
er nú. Snemma á söguöldinni hafa Íslendíngar haft þrjár tegundir
feldardálka, enda höfum vér sýnishorn af þeim öllum í safninu (nr. 96,
97 og 190). Þá er það að eins ein aðal-feldardálkstegund, sem enn
er hér óþekkt, sumsé hinir laungu og mjóu feldardálkar, er hafa beygíngu
um miðjuna: sjá Worsaae : Nordiske Oldsager 1859, nr.425-429. Slíkir
feldardálkar eru eflaust úr heiðni og ef til vill frá því áður en Ísland
bygðist. Auk þess, sem þetta er merkilegt fyrir oss að vita, þá er
það og merkilegt fyrir útlenda, því af þeim geta þeir meðal annars betur
ráðið aldur feldardálka þeirra, er hjá þeim finnast.
Main information
Dating
900 - 1000
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 97
"Museumnumber b": 1864-55
Dimensions
7 x 0 cm
Lengd: 7 cm
Place
Staður: Þjórsárdalur/Lausafundir, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Þjórsárdalur, Ísland
Exhibition text
Þorn úr stórri hringnælu úr kopar
sem fannst í Þjórsárdal, en fundaratvik eru ókunn. Sylgjan glataðist og
þorninn var brotinn áður er hann kom til safnsins. Líklegast úr kumli konu
frá 10. öld, þá sennilega sama kumli og brjótsnælurnar tvær nr. 96.
97
Þorn úr stórri hringnælu úr kopar
sem fannst í Þjórsárdal á Suðurlandi, en fundaratvik eru ókunn. Sylgjan
glataðist og þorninn var brotinn áður er hann kom til safnsins. Líklegast
úr kumli konu frá 10. öld, þá sennilega sama kumli og brjótsnælurnar tvær
nr. 96.
97
Þorn úr sylgju, mun úr kumli konu
frá 10. öld.
Spjaldtexti:
Skart
Konur áttu skartgripi svo sem skrautnælur,
kamba úr horni, nálhús og snyrtitangir úr kopar og látúni. Einnig steinasörvi,
hálsfestar með gler-, stein- og raftölum. Klæðaprjónar og sylgjur gátu
verið í eigu jafnt karla sem kvenna.
Ornaments
Women had various
ornamental items such as brooches, combs made of horn, needle cases and
copper and brass tweezers, also strings of glass, stone or amber beads.
Pins and clasps were worn by both men and women.
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Keywords
Keyword: Þorn, skráð e. hlutv.
