Baukur, f. tóbak, t.d. vindla
In preservation at
National Museum of Iceland
Baukur úr nýsilfri,
bolurinn með algengu tóbaksdósarlagi, sporöskjulagaður, hliðarnar úr flötum
plötum, sem kveiktar eru á kúptan hring eða umgjörð. Hringur þessi er silfurkveiktur,
en annars er baukurinn tinkveiktur allur. Neðan á hann er kveikt stétt
og skrúfaður á hana tappi: renndur. Stuttur stútur er á hinum endanum sömuleiðis
renndur og tappi með kúlulaga haus og kengur upp úr. Í honum er festi og
hinn endinn festur í keng öðrum megin á bauknum. Á aðra röndina
er grafið: Áskell B.S. með laglegu handbragði. L. með stétt og tappa 11,5
cm, br. 5,5 cm, þ. 2 cm. - Ókunnugt er hver smíðað hefur baukinn, en ég
(H.B.) fékk hann hjá Halldóri Jónassyni frá Hrauntúni nú fornbókasala í
Reykjavík. Lét ég fyrir hann litla rostungstönn, lagaða í bauk undir silfur.
Baukinn kvaðst Halldór hafa fengið með þeim hætti, að til hans kom í búðina
maður, er hann ekki þekkti: var sá ölvaður nokkuð og bað, að sér væri lánaðar
5 kr. og bauð baukinn að veði. Síðan eru liðin tvö ár, og hefur maðurinn
ekki komið að vitja hans enn þá, er ég fékk hann hjá Halldóri 1939.
Main information
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 13000
"Museumnumber b": 1942-54
Dimensions
11.5 x 0 x 0 cm
Lengd: 11.5 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Baukur, f. tóbak, t.d. vindla
References
Iðnsaga Íslands I. Reykjavík
1943, bls. 393.
Þór Magnússon. "Baukasafn
Hjartar Björnssonar." Gersemar og þarfaþing. Reykjavík 1994,
bls. 170-171.