Veggspjald, skráð e. hlutv.
1970 - 1975

In preservation at
National Museum of Iceland
Prentað veggspjald / plakat, rautt
á lit en texti á því er hvítur og svartur. Plakatið er væntanlega frá fyrri
helmingi 8. áratugs 20. aldarinnar og er auglýsing um kröfugöngu 1. maí.
Fyrir auglýsingunni standa Félag bókagerðarnema og Félag járniðnaðarnema.
Gefandi er Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, fyrrum þulur í Ríkisútvarpinu
en Inga Lára Baldvinsdóttir, fagstjóri Ljósmyndasafns Íslands afhenti fyrir
hönd Ragnheiðar. Á plakatinu stendur:
BARÁTTUGANGA
LAUNAFÓLKS
1. MAÍ
GEGN UNDANSLÆTTI -
HARÐARI KJARABARÁTTU
AUKIÐ LÝÐRÆÐI Í VERKA-
LÝÐSHREYFINGUNNI
GEGN AFSKIPTUM RÍKIS
AF GERÐUM SAMNINGUM
VERJUM FRJÁLSAN
SAMNINGSRÉTT
STÖÐVUM KAUPRÁNIÐ
GEGN FLOKKSRÆÐI Í
VERKALÝÐS-
HREYFINGUNNI
Safnast verður saman á Hlemmi 1.
maí kl. 13.00.
Gengið niður Laugaveginn kl. 14.00
á Hótel
Íslandsplan (Hallærisplan) þar
sem haldinn verður
útifundur. Ávörp - söngur - tónlist.
Félag bókagerðarnema Félag járniðnaðarnema
Main information
Donor: Ragnheiður Ásta Pétursdóttir
Dating
1970 - 1975
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2008-63
Dimensions
41.8 x 29.4 x 0 cm
Lengd: 41.8 Breidd: 29.4 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Veggspjald, skráð e. hlutv.
