Undirstykki

In preservation at
National Museum of Iceland
Undirstykki af skálaburstinni í Laufási. Úr furu. Er þetta útskorið konuhöfuð, blómskraut upp af því og efst tvö egg. Myndin er kringskorin, höfuð þó flatt aftan. Hæð rúml. 41 sm, br. mest tæpl. 13 sm. Leifar dökkgulrar málningar á. Allt mjög fúið og stórir brestir eftir endilöngu. Eftir undirstykki þessu smíðaði Guðmundur Þorsteinsson annað eins, og var það sett upp á sínum stað á Laufásbænum.* Fuglinn þar er hins vegar hinn upprunalegi, skorinn af Guðmundi bíld, eins og þetta.
*Blikinn sem kom til safnsins 1988 er sá sem áður var minnst á, eftir Guðmund bíld og af skálaburstinni í Laufási. Hann fékk safnnúmerið Þjms. 1988-145. (Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir, jan. 2010).
Main information
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: 15359
"Museumnumber b": 1953-94
Dimensions
41 x 13 cm
Lengd: 41 Breidd: 13 cm
Place
Staður: Laufáskirkja, Kirkjan, 616-Grenivík, Grýtubakkahreppur
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Undirstykki
Place of origin
65°53'36.2"N 18°4'19.7"W



