Altaristafla

In preservation at
National Museum of Iceland
Altaristafla úr furu með vængjum. Miðtaflan er 72, hvor vængur 36 cm. að br., en að h. 114,5. Hver um sig er spjald í umgerð. Á miðtöflunni er kveldmáltíðarmynd,á vængjunum Kristur og kirkjan (Sta. Ecelesia), kvenleg vera með kakeik ( hins nýja sáttmála): uppi yfir þeim eru skjaldarmerki og upphafsstafir: yfir : myndinni er skjöldur með 2 lyklum á ská og byskupsmítri: björn uppaf hjálminum: blaðaskraut um: HGTS hjá, þ.e.Herra Gísli Thorláks Son : yfir hinni myndinni er ljósblár skjöldur með einhyrningi og er hálfur einhyrningur upp af hjálminum (merki Eggerts Eggertssonar, notað af Gísla lögmanni móðurföður Gísla byskupi):stafirnir IBD hjá, þ. e. Ingibjörg Benekiktsdóttir. Munu þau hjónin hafa látið gera töflu þessa og gefið kirkjunni á Grund. Ofaná miðtöfluna er negld fjöl, strikhefluð, og gengur hún framyfir töfluna og utyfir, þegar hún er lokuð. Að utan eru vængirnir mógráir. - Myndirnar á töflunni eru engin listaverk, þó ekki afleitar. það lýtir mjög myndirnar á vængjunum, að líkamsskapnaðurinn er látinn koma óeðlilega skýrt fram, þrátt fyrir hina víðu og dragsíðu kyrtla: er svo að sjá sem persónurnar standi andspænis sterkum vindi. - Taflan má vel vera eptir íslenskan málara. Viðbætur Þóru Kristjánsdóttur 2008:  Þessi altaristafla er íslensk, gefin Grundarkirkju af þeim hjónum Guðbrandi Þorlákssyni Hólabiskupi og miðkonu hans Ingibjörgu Benediktsdóttur Halldórssonar eiganda Grundar. Brúðkaup Ingibjargar og Gísla biskups var haldið árið 1664 og mun þá hluti jarðarinnar hafa gengið til þeirra hjóna. Ingibjörg lést árið 1673 og má því ætla að altaristaflan hafi komið í kirkjuna á árunum 1664-1673, en hennar er fyrst getið í vísitasíu biskups árið 1685, þá sem gjöf frá Gísla biskupi. Reynt hefur verið að færa rök fyrir því að annar af helstu listamönnum þjóðarinnar á þessum tíma hafi málað þessa mynd, skurðmeistarinn Guðmundur Guðmundsson frá Bjarnastaðahlíð eða séra Hjalti Þorsteinsson í Vatnsfirði, en myndina þarf að rannsaka betur og bera saman við fleiri verk eftir þessa menn. Það sama á við um altaristöflu frá 1680 úr Grafarkirkju á Höfðaströnd (Þjms. 10964), sem bersýnilega er eftir sama listamann.  Sjá Mynd á þili, bls. 56-65 og Kirkjur Íslands 10. bindi (2007) um Grundarkirkju bls. 93. 

Main information

Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 8771 "Museumnumber b": 1923-81
Dimensions
36 x 114.5 cm Lengd: 36 Breidd: 114.5 cm
Place
Staður: Grundarkirkja í Eyjafirði, Kirkjan, 605-Akureyri, Eyjafjarðarsveit
Exhibition text
 Gersemar - Fornir kirkjugripir úr Eyjafirði í vörslu Þjóðminjasafns Ísland: Altaristafla úr Grundarkirkju með upphafsstöfum biskupshjónanna á Hólum, Gísla Þorlákssonar og Ingibjargar Benediktsdóttur. Ingibjörg var dóttir Benedikts Halldórssonar eiganda Grundar á árunum 1627-1680. Brúðkaup þeirra var haldið árið 1664, og mun þá hluti jarðarinnar hafa gengið til þeirra hjóna. Ingibjörg lést árið 1673, og má því ætla að altaristaflan komi í kirkjuna á árunum 1664-1673. Hennar er getið í vísitasíu Jóns Vigfússonar biskups árið 1685 sem gjöf frá Gísla biskupi. Á miðtöflunni er mynd af síðustu kvöldmáltíð Krists og lærisveinanna, en á vængjunum eru Kristur vinstra megin og Jóhannes guðspjallamaður hægra megin. Yfir þeim eru tvö skjaldarmerki. Annað er með biskupsmítri og tveimur lyklum og birni upp af hjálminum, en hitt er með einhyrningi á bláum feldi, þ.e. hið gamla skjaldarmerki Eggerts Hannessonar lögmanns og ættmenna hans. Altaristaflan er 114,5 cm á hæð og opin 144 cm á breidd. Altar piece, dating from the 17th century, from the church at Grund in Eyjafjörður, engraved with the initials of the married couple Gísli Þorláksson, bishop, and madame Ingibjörg Benediktsdóttir and the coats of arms. Ingibjörg was the daughter of the proprietor of Grund in the late 17th century and their wedding was celebrated in 1664. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 6.4.2011)
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Altaristafla
References
Þóra Kristjánsdóttir. „Guðmundur Guðmundsson frá Bjarnastaðahlíð“. Mynd á þili. Reykjavík 2005, bls. 56-65.     Þóra Kristjánsdóttir, „Grundarkirkja“. Kirkjur Íslands 10. Reykjavík 2007, bls.93.     Þóra Kristjánsdóttir. Gersemar - Fornir kirkjugripir úr Eyjafirði í vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Akureyri, 1999.

Place of origin

65°31'9.8"N 18°9'13.5"W