Bakstursöskjur

1699
In preservation at
National Museum of Iceland
Úr aðfangabók: Bakstursöskjur úr silfri, kringlóttar, þverm. 7,4 - 7,7 sm., hæð með lokinu 3,2 sm.: lok og botn standa út fyrir og eru randirnar beygðar reglulega upp og niður í smábárur: þverm. 8 - 8,1 sm.  Öskjurnar eru ágætlega drifnar umhverfis og á loki, rósastrengir með blöðum og blómum í skábogastíl.  Á miðju loki er sléttur, lítið eitt hvelfdur flötur og grafið á hann NHRS Anno 1699, upphafsstafir gefandans.  Neðan á botninum er tvísettur stimpill smiðsins, virðist vera I og S, öfugt, samandregin.  Lítur helst út fyrir að vera merki Johans Thomesen Stickmans, silfursmiðs og myntmeistara í Kaupmannahöfn, d. 1663 1).  - Einar öskjur líkar þessum eru í Vídalínssafni og má nú ætla að þær hafi og verið bakstursöskjur.  Í þjóðmenjasafni Dana og í dönskum kirkjum 2) eru til nokkrar líkar öskjur er án efa hafa verið gerðar til að vera bakstursöskjur.  - Þessar eru frá Landakirkju á Vestmannaeyjum.  Þeirra er getið svo í visitaziu meistara Jóns Vídalins 14. maí 1704: Bakstursöskjur af silfre, sem kirkiuvaktaren seiger kaupmaduren Monsr. Niels Reiels son hafe kirkjunne gefed.  Stafirnir á lokinu eru upphafsstafir hans.        1) Bernh. Olsen, Köbenh. Guldsm. Mærker, nr. 209.      2) Eftir skýrslum og myndum forstöðum. þess, dr. M. Mackeprangs, að dæma, sem hann hefir góðfúslega sýnt höf.

Main information

Dating
1699
Object-related numbers
Museumnumber a: 6646 "Museumnumber b": 1914-83
Dimensions
3.2 x 7.7 cm Lengd: 3.2 Breidd: 7.7 cm
Place
Staður: Landakirkja, Kirkjuvegur 100, 900-Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabær, Vestmannaeyjabær, Ísland
Exhibition text
Bakstursöskjur, oblátuöskjur, úr silfri með drifnu verki, smíðaðar af Johan Thomsen Stickmann, d. 1664, eða Jörgen Stilche, d. 1685, gullsmíðameisturum í Kaupmannahöfn. Úr Landakirkju í Vestmannaeyjum með fangamarki gefanda, NHRS, Niels Reiels son kaupmanns í Vestmannaeyjum, og ártali er þær eru gefnar, 1699. 6646 Oblátuöskjur, úr silfri með drifnu verki, smíðaðar af Johan Thomsen Stickmann, d. 1664, eða Jörgen Stilche, d. 1685, gullsmíðameisturum í Kaupmannahöfn. Úr Landakirkju í Vestmannaeyjum með fangamarki gefanda, NHRS, Niels Reiels son kaupmanns í Vestmannaeyjum, og ártali er þær eru gefnar, 1699. Oblátuöskjur úr silfri, danskar frá 17. öld. Úr Landakirkju í Vestmannaeyjum. Spjaldtexti: Bakstursaskja úr Landakirkju í Vestmannaeyjum. Oblátur voru geymdar í bakstursöskjum sem einnig eru nefndar oblátuöskjur eða oblátudósir. Container from the Westman Islands, South Iceland, for storing communion bread.
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
References
Kirkjur Íslands. 11.bindi. Ritstjórar: Jón Torfason, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík, 2008.

Place of origin

63°26'13.5"N 20°16'20.3"W