Prjónastokkur

In preservation at
National Museum of Iceland
Prjónastokkur, útskorinn, smíðaður úr birki, ferstrendur, með kringdum útskotum við enda, og hverfiloki.  Lengd hans um 34 cm, breidd 4 cm og hæð 4,5 cm.  Bolurinn eintrjáningur, plata við annan enda á stokk að ofan, fest með trétittum, 12,4 cm á lengd, en hinu megin og í miðju er lok sem snúist hefur um typpi á útskotinu, typpið nú horfið, en gat fyrir það í lokinu, ílangt, stúfur er á hinum hlutanum og skarð í plötu andspænis. Þykkt loks og plötu 0,7 cm.  Skorið er ofan af lokenda, helming niður, og brúnin að innan liggur á ská þversum, lengd úrtaksins 10,7 cm, hefur hér verið þynna.  Gerður er blómstrengur á loki, plötu og langhliðum, rós er á öðru útskota en röð lóðréttra blaða með þang yfir við miðju á útskotum að utan.  Skurðurinn lágt upphleyptur. Fallegur gripur.  Greina má rifur í bolnum og bletti.  Stokkur þessi var hirtur í rusli hjá Sorpeyðingarstöð Reykjavíkur.

Main information

Object-related numbers
"Museumnumber b": 1963-280
Dimensions
34 x 4 x 4.5 cm Lengd: 34 Breidd: 4 Hæð: 4.5 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords