Fiskilóð

In preservation at
National Museum of Iceland
Fiskilóð, með flaska og eftirlíkingu beitu. Er þinullinn um 107,8 m á lengd á honum 96 önglar, taumarnir um og innan við 38 cm á lengd, en önglar um 6 cm, þvermál þinuls 0,4 cm, og tauma 0,2 cm. Flaskinn, ekki all stór hleri, er smíðaður úr furu, hann er áttstrendur, nær jafn breiður á báða vegu, í honum þrjár fjalir samhliða, og tveir okar negldir öðru megin, breidd 44,8 cm og 45,7 cm, en þykkt plötu 1,6 cm, okarnir, sem ná hér um bil brúna á milli, eru 4 cm á breidd, þykkt 1,5 cm. Andspænis miðjum miðbrúnum er borað gegn kringlótt gat, er í eitt þeirra bundinn þinullinn, en í hin spottar, jafngildir, og spotti slíkur liggur frá þinalshálsi, lengd þeirra um 80 cm,með þeim er lóðin bundin föst, en hún er hringuð á flaskann og önglar hafðir í miðju. Á alla öngla er krækt eftirlíking beitu, ljósabeitu, úr hvítgulum svampi. Flaskinn er gljáborinn. Samanber Sjóminjasafn.

Main information

Object-related numbers
"Museumnumber b": 1964-1
Dimensions
6.7 x 5.3 x 0.7 cm Lengd: 6.7 Breidd: 5.3 Hæð: 0.7 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Fiskilóð