Legsteinn
1650 - 1700

In preservation at
National Museum of Iceland
Legsteinn úr rauðum sandsteini,
með all langri áletrun. Steinninn er eiginlega sjöhyrndur og flatur, og
vel flatur að framanverðu, þar sem letrað er, eða svo má heita, en nokkuð
er bakhliðin ójöfn. Hliðarnar umhverfis hafa verið beinar og flatar. Talsvert
hefur flaskast úr steininum, einkum úti við brúnir. Í vasabók frá Matthíasi
Þórðarsyni, sem var í plöggum, er frá honum hafa komið og nú eru hér á
safninu, er lýsing hans á legsteini þessum, og á miða, sem í bókinni er,
er skýring á því, sem á honum stendur. Matthías skrifar á þessum stað í
vasabókina og er það tekið hér upp eins náið og kostur er: Kalmanstungu.
Hjer eru kirkjurústir í miðjum kirkjugarði: - nokkur hluti hans hefur
verið rifinn niður og sljettaður. Í krikjug. er legsteinn úr rauðum steini
úr Húsafellsgili, á honum stendur: (þar sem tölvan ræður ekki við alla
stafi hér er þessu sleppt að sinni) Neðan undir letrinu sjést
votta fyrir þessu merki: (tölvan ræður ekki við það) Steinninn
er mjór í báða enda og er kvarnað úr efri endanum allmjög og vinstri jaðrinum:
steinninn hefur ekki verið vel höggvinn og ekki plan að ofan en nokkurn
veginn sljettur. Að neðan er hann alveg óhöggvin... Matthías
teiknar upp mynd af merkinu, sem neðst er, eins og það mun hafa litið út,
og þannig: IHS (inni í hring): og hér er lauslega sýnd teikningin. Á miðanum,
sem á var minnzt, stendur: Legsteinninn í Kalmannstungu er óefað settur
yfir og eptir Arngrím Eilífsson (frá Þorvaldsstöðum?). Í ártíðaskrá sjera
Hannesar Bjarnasonar í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd (1631, + 1704), sbr.
Ísl. ártíðarskr. XVIII, stendur við 24. janúar (bls. 194): 24 Januar 1690
andaðist úti í stórviðris þíðu á sunnan Arngrímur Eyleifsson og Ólafr Pétursson
á Þorvaldsstöðum (Þorvarðsstaðir hjet bærinn forðum (sbr. Landnáma og Hug.)).
Grafskriftin mun eginl. hljóða þannig, skrifuð með venjul.
nútíðar rithætti: Arngrímur Eyleifsson í lífs-upprisu
von hvílir hjer hægt í guði: hans sál er í fögnuði.
Christi fæðingu frá full 16 hundruð má og 90 (telja)
til sín rjeð guð hann velja. So skín í sönnum frið sál
hans lambsins stó við, 7 sinnum sólu fegri í sælu æfinlegri.
A(men). Þ.J.S. Það er sem sje ekki um að villast,
að þetta eiga að vera 3 fullkomin vers. Til þess að 2 síðustu línurnar
í miðversinu rími saman og sjeu eptir sama bragarhætti, þ.e. hafi sömu
lengd og 2 síðustu línurnar í fyrsta og seinasta versinu, þá verður að
álíta, að þær endi á telja og velja. Telja hefur fallið úr af vangá (af
því að næsta orð byrjaði með t?) og lítur út fyrir, að sá, er letrið gróf
hafi ruglast í versinu og sett atviksorðið vel í st. f. sögnina velja.
A merkir líkl. amen. Þ.J.S. er líkl. fangamark þess, er orti vísurnar og
setti grafskriptina (fremur en þess, er letrið gróf á steininn).
Kbh. 18.IV.1904. Matthías Þórðarson. Ekkert er
nú læsilegt af efstu áletrunarlínunni. Í tíundu línu er lóðrétt, grafið
strik aftan við l í vel, ekki skýrt, það sveigist inn neðst, má líklega
lesa þarna j. Legsteinninn er allur um 54.6 sm, br. mest 28.5
sm, þykkt mest 11.6 sm. Áletrunin er með stílfögru latínuletri, upphafsstöfum,
eins og sjá má hér að ofan. Svo virðist, sem áletrunin hafi verið skýrari,
er Matthías las hana og skrifaði hið ofangreinda í vasabók sína. Óhreinindi
sitja nú í steininum. Sbr. næsta nr. á undan.
Main information
Dating
1650 - 1700
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 15016
"Museumnumber b": 1951-263
Dimensions
54.6 x 28.5 cm
Lengd: 54.6 Breidd: 28.5 cm
Place
Staður: Kalmanstunga 1, 320-Reykholt í Borgarfirði, Borgarbyggð, Hvítársíða, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Legsteinn
Place of origin
64°43'49.6"N 20°47'49.4"W
