Bollasteinn, til hreinlætis

In preservation at
National Museum of Iceland
Bollasteinn úr eygðum hraunsteini, nokkurn veginn kringlóttum 43 að þverm. og um 17 að h. Bollinn eða skálin allvel höggvin í, um 30 cm. að þverm. efst, en minni við botninn, sem er með laut í miðju: laggir ekki skarpar: dýpt 6 - 10,5. Barmar ávalir og vel jafnir að ofan, en um sig er steinninn fremur ójafn og þó lagaður til af manna höndum. Hann er frá Neðra-Hálsi í Kjós: Keypti gef. hann þar á uppboði yfir búshluti o. fl. Hann er án efa forn og hefur sennilega verið grafinn úr jörðu. Vafasamt er til hvers hann hefur verið gerður eða notaður, en hann kann að hafa verið mundlaug, herzlunór, mortjer, drykkjarskál fyrir skepnur eða enn fleira. Líkir muna hafa verið sumir vatnssteinarnir við kirkjurnar í katólskum sið, en ekki er kunnugt, að kirkja hafi nokkru sinni verið á Neðra- Hálsi. Sumir ætla og þykjast heyrt hafa, að hér hafi til forna bænhús verið. Eru þó í óvissu hér um, segir Árni Magnússon í Jarðabók sinni 1705.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: 8783 "Museumnumber b": 1923-93
Dimensions
43 x 0 x 0 cm Lengd: 43 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Place
Staður: Neðri-Háls, 270-Mosfellsbæ, Kjósarhreppur, Kjós, Ísland
Exhibition text
Bollasteinn höggvinn úr hraunsteini, kominn frá Neðra-Hálsi í Kjós og gæti hafa verið nóstokkur, herslunór, í smiðju eða vatnssteinn við kirkju í kaþólskum sið, en ekki er þó vissa fyrir að þar hafi verið kirkja þótt óljós munnmæli væru um það um 1700. Aldur óviss. 8783 Bollasteinn höggvinn úr hraunsteini, gæti hafa verið nóstokkur, herslunór, í smiðju eða vatnssteinn við kirkju í kaþólskum sið. Aldur óviss. 8783 Spjaldtexti: Nóstokkur úr smiðju, hafður undir vatn til að kæla heitt járn. Water trough from a smithy. It was filled with cold water to quench the hot iron.
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir

Place of origin

64°20'54.8"N 21°37'14.1"W