Koppsetningarstokkur

In preservation at
National Museum of Iceland
Sigríður Eiríksdóttir,
hjúkrunarkona: Kassi, smíðaður úr mahóní, brúnn, ferhyrndur og flatur,
og haft lok yfir á hjörum, með bíld og lamba úr kopar og átta blóðtökuskálum
úr glæru gleri. L. hans 21,4 sm, br. 17 sm, h. 8 sm og þ. við veggi 1 sm.
Ein fjöl í loki að ofan, hliðum og botni, greypt er saman við horn, límt
við lokplötu og botn, settar í spíkur, 0,7 sm á þ., að neðan, og gerð níu
hólf, liggja saman átta hólf með ferningslagi, jöfn að stærð, og haft ílangt
hólf framan við. Tvennar hjarir úr kopar, og úr sama efni handfang á loki
miðju og tvennar krækjur við framhlið. Sjá má ávala á brúnum kassans að
ofan og á efri brún á spíknum. Bíldurinn 6,4 sm að þvm., l. lampa 14,7
sm, h. skála 5 sm og þvm. um 4,3 sm, ein er 5,3 sm á h., en þvm. jafnt
og á hinum, lítil rauð gummípípa í einni skálanna. Kassinn er blettóttur
og fallið hefur á kopar. Var í eign móður gefanda. Vilborgar Guðnadóttur
frá Keldum í Mosfellssveit, og arfur frá systur hinnar síðarnefndu, Vigdísar
Guðnadóttur, ljósmóður frá Keldum.
Main information
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1960-4
Dimensions
21.4 x 17 x 8 cm
Lengd: 21.4 Breidd: 17 Hæð: 8 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Koppsetningarstokkur