Hæna, skrautgripur
1881

In preservation at
National Museum of Iceland
Sama: Hæna útskorin úr bæki (?),
tæpir 30 cm á lengd frá nefi og aftur á stél, mest 16,5 cm á hæð og er
þá mæld með skál eða karfa útskorinn, sem er undir hænunni. Hænan öll er
máluð og lökkuð (nýlega), alhvít, nema kambur og separ eru rauðir og nef
og augu gul. Karfan er einnig gul. Útskorin af Guðmundi Pálssyni (bíld)
í janúar 1881: var hann þá gestur á Tannstaðabakka. Skar hann hænuna eftir
lifandi fyrirmynd, sem var mógul að lit. Fyrst gerði hann uppdrátt, en
efnið þótti honum tæplega nóg til að hafa stélið svo, sem hann helzt vildi.
Main information
Dating
1881
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: 12162
"Museumnumber b": 1937-118
Dimensions
30 x 16.5 x 0 cm
Lengd: 30 Breidd: 16.5 Hæð: 0 cm
Place
Staður: Tannstaðabakki, 500-Stað, Húnaþing vestra
Exhibition text
Hæna sem liggur á körfu, útskorin
í tré og máluð, málningin nú var nýleg er hænan kom til safnsins. Hún er
skorin af Guðmundi Pálssyni, er kallaður var "bíldur" (eftir
danska orðinu billedskærer, myndskeri) í janúar 1881 þá gestkomandi á Tannstaðabakka
í Hrútafirði eftir hænu þar, sem var mógul að lit. Hann gerði fyrst uppdrátt
áður en hann skar, en fannst efnið tæplega nógu gott til að geta haft stélið
svo sem hann vildi. - Guðmundur var fæddur 1830 og lést 1884, fékk ásamt
Sigurði málara konunglegan styrk til náms á Listaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Hann átti sjaldnast fast heimili eftir að heim kom en fór um norðanlands
og skar út ýmsa gripi, nöfn og skraut á bæi, nafnfjalir á skip og ýmislegt
fyrir kirkjur og er margt af því til enn.
12162
Hæna sem liggur á körfu, útskorin
í tré og máluð. Skorin árið 1881 af þekktum farandmyndskera, Guðmundi Pálssyni,
sem lærði myndskurð á Listaháskólanum í Kaupmannahöfn eftir miðbik 19.
aldar og ýmsir hlutir eru þekktir eftir enn.
12162
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Hæna, skrautgripur
References
Jón Jóhannesson: "Guðmundur
"bíldur."" Blanda V. árg., 1934, bls. 280 - 287.
Place of origin
65°16'44.0"N 21°5'33.1"W
