Álfapotturinn
1400 - 1600

In preservation at
National Museum of Iceland
Smápottur, steyptur úr kopar, með eyrum 2, sem eru eins og 7 í laginu, og fótum 3 niðurmjóum og 3 cm. háum; er 1 þeirra frumlegur og er hálfsívalur; hinir sívalir og hafa verið settir í fyrir aðra, sem brotnað hafa af. Hann kringlóttur 12,8 cm. að þverm., víðastur neðantil og með fláandi börmum; hæð 7,7 cm.; 10,2 að h. með fótum. Barmar sprungnir á 3 stöðum. Mjög svartur utan og ellilegur; grænflekkóttur innan. Virðist vera frá miðöldum. - Með honum fylgir þessi saga:
,,Um álfapottinn.
Fyrir hjer um bil 70-80 árum bjó maður að nafni Pálmi Guðmundsson á Litla-Garði í Dýrafirði í Ísafjarðarsýslu. Hann var maður hjátrúarlaus og trúði ekki að draugar nje álfafólk væri til, og þótti honum oft gaman að þrætast á við aðra um þess háttar; en þó bar það til einhverju sinni á gamlárskveld, að þegar hann kom út í tunglsljós, sem þá var, að honum sýndist sem flokkur af fólki færi fyrir neðan hlaðvarpann og bar eitthvað skran, sem hann ekki sá hvað var; og svo stóð hann kyr um stundarkorn og trúði ekki sjálfum sjer, að það væri nema vitleysa. Loks verður honum litið á hvar barn, hjer um bil 4 til 5 ára, er á eptir fólkinu og hann heyrir svo gjörla að barnið sagði: ,,Mamma mín! Mamma mín!", og svo sá hann að það hjelt á einhverju í hendinni, en hvað það var, gat hann ekki sjeð. Þá dettur honum í hug að fara á eptir, en þegar hann er rjett kominn á stað, sjer hann að það setur þetta af sjer og fer að flýta sjer enn meir og kalla sem fyr, og þá fer hann þangað sem þetta lá, tekur það upp og sjer að það er pottur, sem honum þykir vera mjög undarlegur. Sá hann þá að þetta voru álfar og þótti mjög mikil skemtun að, en pottinn bar hann með sjer heim og ljet ofaní kistu úti á skemmulopti, og lofaði hann ekki nema beztu vinum sínum að sjá hann, en á seinasta ári hans gaf hann fóstursyni sínum hann, sem hjet Pálmi Ásmundsson, sem seinna bjó á Ósi í Bolungarvík, og bað hann geyma vandlega svo lengi hann lifði, og sá Pálmi dó árið 1865 um sumarið, en þá eignaðist sonur hans Pálmi þennan pott, en hann dó um 1870. Þá tók kona hans Sigríður Jónsdóttir pottinn og hefur geymt hann síðan. Oft hefur verið beðið um ofurlítið af svarfi úr álfapottinum bæði til að leggja við brjóstmein og fingurmein, og það sýnir fóturinn á pottinum, að það er satt, því að það er lægð inn í hann, og hefur allajafnan hitt svo á, að það hefur farið að batna strax á eptir. Ísafirði, 8. marz 1882."
Gersemar þjóðarinnar:
Máttur álfapottsins
Pottinn eignaðist Þjóðminjasafn Íslands árið 1882. Honum fylgdi saga sem fest var á blað þann 8. mars sama ár. Álfapotturinn svonefndi er bumbuvaxinn smápottur með útsveigðum börmum, steyptur úr koparblöndu. Hann er með tveimur gagnstæðum þríhyrndum eyrum og stendur á þremur fótum, einn þeirra er upprunalegur en hinir hafa verið settir í stað annarra sem brotnað hafa af. Hann er dökkur á lit, sums staðar svartur af sóti og grænflekkóttur að innan.
Í sögunni sem fylgdi pottinum segir frá ævintýrum hins hjátrúarlausa Pálma Guðmundssonar í Litla-Garði (Minna-Garði) í Dýrafirði gamlárskvöld eitt um árið 1800.
Þar segir orðrétt:
„þegar hann kom út í tunglljósi, sem þá var, að honum sýndist sem flokkur af fólki færi fyrir neðan hlaðvarpann, og bar eitthvað skran, sem hann ekki sá hvað var,... Loks verður honum litið á hvar barn, hérumbil 4 til 5 ára er á eftir fólkinu, og hann heyrir svo gjörla að barnið sagði: ,,Mamma mín, mamma mín," og svo sá hann að það hélt á einhverju í hendinni, en hvað það var gat hann ekki séð. Þá dettur honum í hug að fara á eftir, en þegar hann er rétt kominn á stað, sér hann að það setur þettað af sér og fer að flýta sér enn meira og kalla sem fyr, og þá fer hann þar sem þettað lá, tekur það upp og sér að það er pottur, sem að honum þykir að vera mjög undarlegur. Sá hann þá að þettað voru álfar og þótti mjög mikil skemmtun að, en pottinn bar hann með sér heim og lét ofan í kistu... og lofaði hann ekki nema bestu vinum sínum að sjá hann.“
Sögunni fylgdi að í gegnum tíðina hefði verið sorfið úr álfapottinum til notkunar í lækningaskyni og að ummerki um þetta megi sjá á einum fætinum.
Umfjöllunin birtist í Menningarblaði Morgunblaðsins, 14. maí 2026. Fjallað er um gripi í varðveislu Þjóðminjasafnsins í hverju fimmtudagsblaði undir formerkjunum „Gersemar þjóðarinnar”.
Main information
Donor: Sigríður Jónsdóttir
Title
Álfapotturinn
Dating
1400 - 1600
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 2050
"Museumnumber b": 1882-8
Dimensions
12.8 x 10.2 cm
Lengd: 12.8 Breidd: 10.2 cm
Place
Staður: Garður, 471-Þingeyri, Ísafjarðarbær, Ingjaldssandur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Keywords
Keyword: Pottur, óþ. notk.
References
. Kristján Eldjárn. "Álfapotturinn." Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Reykjavík 1962, þáttur nr. 19.





