Fjöl, útskorin
1300 - 1400

In preservation at
National Museum of Iceland
Úr aðfangabók:
Fjöl, útskorin með bríkarlagi, með manna- og dýramyndum. Rósirnar eru helzt í byzönskum stíl, og vel gjörðar; innan í þeim er hreindýr eða hjörtur og maður á hesti, girður sverði; hann sýnist vera á dýraveiðum, en á myndina vantar nokkuð, þar eitthvað er sagað af endunum á fjölinni. Eptir því sem ráða er af sverðshjöltunum eða lögun þeirra, getur fjölin verið frá 14. öld, enda eldri. Á myndunum sést, að fjölin hafi staðið upp, en ekkert er til um það, hvaðan hún muni vera.
,,Hinn 9. sept. 1939 gaf Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur safninu útskorna fjöl frá Munkaþverá; Er hún sýnilega hluti af 964 og er fest við það nr. nú. Lýsa þyrfti nú fjölinni að nýju.“ KE
Úr Hundrað ár í Þjóðminjasafni: (Kristján Eldjárn)
Miðreiturinn er stærstur, og þar sést myndaður í hátt upphleyptum skurði hinn mikli dýrðarmaður heilagur Georg, sá er hreif prinsessuna Kleodolinu úr valdi drekans, en því miður hefur sögin blygðunarlaust vaðið gegnum þessa mynd. Þó sést dýrðlingurinn, sitjandi á fáki sínum tvíhenda lensu og keyra hana ótæpilega í gin drekanum ógurlega, sem liggur á bakinu undir fótum hestsins og glennir kjaft og klær uppfyrir sig í vanmegnugri bræði.
(Sett inn af Kára Gunnlaugssyni, 19.08.2010)
Kirkjur Íslands, 10.bindi, bls. 228:
Fjöl [...] með myndskurði, 238 cm á lengd. Sveigður laufteinungur skapar hringlaga myndfleti. Sá stærsti um miðbik fjalarinnar sýnir líklega heilagan Georg að vega drekann en óljósara um myndefni annarra flata. Útskurðurinn þykir bera keim af alþýðulist og því erfitt að ákvarða aldur hans út frá stílnum einum saman. Stíllega telst laufskurðurinn fremur rómanskur en gotneskur en víða á fjölinni er notuð útskurðartækni sem var ekki algeng fyrr en seint á miðöldum. Ætla má að fjölin hafi verið skorin eftir brunann 1429. Gæti hafa staðið við kórdyr eða forkirkjudyr.
(Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 11.5.2011)
Main information
Donor: Jón Jónsson
Dating
1300 - 1400
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 964
"Museumnumber b": 1873-47
Dimensions
117 x 29.5 cm
Lengd: 117 Breidd: 29.5 cm
Place
Staður: Munkaþverá, 601-Akureyri, Eyjafjarðarsveit , Staðarbyggð, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Fjöl, útskorin
References
Ellen Marie Margerøy. „Planteornamentikken i islandsk treskurd, I-II.“ Bibliotheca Arnamagnæana. Supplementum Vol. VI. Hafniæ 1967.
Kristján Eldjárn.„Útskurður frá Munkaþverá.“ Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Reykjavík 1962, 11. þáttur.
Kirkjur Íslands, 10.bindi. Ritstjórar: Jón Torfason, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík, 2007.
Place of origin
65°32'41.1"N 18°4'50.4"W



