Kúlubyssa
1800 - 1850

In preservation at
National Museum of Iceland
Kúlubyssa (riffill),
framhlaðin, með bækiskepti, alskepti. Lögun ekki óvenjuleg, en stærðin,
gildleiki meiri en á handbyssum gjörist, enda hefur þessi verið sett á
undirstöður: er járnhespa um hlaupið og í gegnum skeptið, fest í stóra
járnskrúfu, l. um 29 cm. og þverm. 2,4 - 8 cm. Byssan er um 130 cm.
að l.: hlaupið 86,5 cm.: er það áttstrent aptast, 5 - 6,4 cm. að þverm.
, en sívalt um miðju og framúr, 5 - 6,1 cm. að þverm. Hlaupvídd
3,1 cm. að þverm. Handbjörg og gikkur úr járni. Lásinn frá
og þynnan hinsvegar, sem lásskrúfurnar hafa gengið í gegnum: sömuleiðis
er skórinn af: mun þetta hafa verið úr kopar. - Fremst á hlaupinu
er kopar sigti. Pinnin er af. Sennilega hefur
byssan verið tinnubyssa. Það sem menn vita hefir hún geymst
við Knudtzons - verzunina ( í Reykjavík, S.V.). Að líkindum hefur
hún verið höfð til að skjóta með hvali og seli og virðist vera frá fyrri
hluta síðustu ( 19.) aldar.
Main information
Donor: Niljohnius Zimsen
Dating
1800 - 1850
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 2502
"Museumnumber b": 1884-20
Dimensions
130 x 0 x 0 cm
Lengd: 130 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Kúlubyssa