Lár, óþ. hlutv.

1656
In preservation at
National Museum of Iceland
Lár, úr bæki nær allur, gaflar á loki úr furu; ómálaður; dálítið bilaður á öðrum gafli.  Hann er 24,8 cm. að l. og 20 að br.; hæð á mæni loksins 17,1 cm.  Hann er nær eins að gerð og lárinn nr. 1079; sbr. og lárinn nr. 5416; en þessi gerð er annars óvenjuleg.  Á hliðarnar á þessum eru skornar myndir af nashyrning og fíl að framan, ljóni og grip (griffóni) að aptan, og letrað nöfnin að neðan: RINOCVS (fyrir rinocerus), FILLINN, LIONID og GRIFON.  Þær eru lágt upphleyptar og fremur illa skornar.  Á milli þeirra eru á báðum hliðum skorinn greinastrengur; sömuleiðis eru greinar og blómaskraut á báðum göflum, ytri fjölunum, og þar eru útskornar í efri endann, sem stendur uppfyrir lokið.  Mænirinn er sem snúra.  Framaná lokið (burstina) er skorin höfðaleturslína og önnur aptaná, en framhald þeirra áletrunar er í latínuleturslínum sem eru sín hvoru megin mænisins, og er þetta svolátandi: gudrun pals - dotter A þenan - CISTIL MED RIET - TV EN ANAREI.  Utar á lokinu, við gaflana, er sín latínuleturslínan hvoru megin: HELGE: ThOMAS - SON: MED: EIIN: HENDI.  Ofaná lokburstirnar báðar yzt á báða enda er sett ártalið 1656, - sett þannig á alla staðina, fjóra.  Innaní lokinu er hólf í miðju og smáhurð fyrir því; er á henni gagnskorið höfðaletur:   leturbr (þ.e. leturbrauð ?): stendur sú áletrun ekki í neinu sambandi við hinar.  Neðan á botninum eru skornar 7+2 línur með latínuleturs-upphafsstöfum; eru 2 neðstu línurnar settar móthverfar hinum 7 efri, - þegar lárinn liggur á bakhliðinni.  Þær línur af þessum 7, sem hafa oddatölu (1., 3., 5., og 7.) eiga að lesast frá hægri til vinstri og verður þá áletrunin svona: ALIT/ TVENT/ ÞV/ AF// MIER/ BER/ FIRE/ IJTVM ÞA// ÞV/ DØMEST/ hLITVR// AD/VERA/ hVORNIN// FER/ hERRANN/ GOD// VR/ VR/ MALVM/ SC// IER: RIETT: SEM: REINIST.  Þrjú síðustu orðin munu eiga að lesast með neðstu tveim línunum, á eptir þeim, enda eru orð aðskilin eins í þeim eins og þeim 2 línum, en ekki með skástriki eins og annars er í hinum 7, og auk þeirra þriggja orða er þar heil og sjálfstæð ferskeytla:   Álit tvent þú af mjer ber/firi ýtum þá þú dæmist./Hlýtur að vera hvörninn fer./Herrann góður úr málum sker . - Neðstu 2 línurnar, sem verða rjettar og efst er kistillinn (lárinn) liggur á framhliðinni, eru svo: EFNID: ER: ECCE: GOTT: OG// EN: SIJDVR: CVNNATTAN.

Main information

Dating
1656
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 2496 "Museumnumber b": 1884-14
Dimensions
24.8 x 20 x 17.1 cm Lengd: 24.8 Breidd: 20 Hæð: 17.1 cm
Exhibition text
Lár úr bækiviði að mestu, á hliðarnar eru skornar myndir af dýrum, nashyrningi, fíl, ljóni og vængjuðu ljóni, grífon. Umhverfis er skorin mjög illlæsileg og afbökuð vísa og endar áletrunin með orðunum: Efnið er ekki gott og enn síður kunnáttan. Mun frá 18. öld. 2496. Lár úr bækiviði að mestu, á hliðarnar eru skornar myndir af dýrum, nashyrningi, fíl, ljóni og vængjuðu ljóni, grífon. Umhverfis er skorin mjög illlæsileg og afbökuð vísa og endar áletrunin með orðunum: Efnið er ekki gott og enn síður kunnáttan. Mun frá 18. öld. 2496.
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords