Spónn

In preservation at
National Museum of Iceland
„Silfrspónn“ með miklu verki, allr gyltr og grafinn, hann er yfir höfuð alveg af sömu gerð og nr. 49 hér að framan [Þjms. 3417], nema lítill kafli á miðju skaptinu er ferskeittr, og aptan á skaptinu er nokkuð annað verk sem slær sér út til hliðanna, í staðin fyrir, mannsmyndina á hinni, en aptan á skaptinu á þessari, er mannshöfuð. Utaná blaðinu er Krists upprisa, og umhverfis röndina grafið með latínuletri: Se det Guds lam sem bar alle verdens sönder. innan í blaðinu er grafin Justitía eptir sem menn hafa þar hugsað sér hana, í heilu líki með útþöndum vængjum, hún heldr á sverði í hægri hendi, en á metaskálum í vinstri hendi, utan með röndinni er grafið. Fröcte Gudt och giör red, saa
mod du lefve. Silfrspónninn vegr 4 lóð 2 kv. 2 ort. er hann allgóðr gripr, Arni Thorlacius gamli í Stikkishólmi fyrrverandi umboðsmaðr, hefir átt hann, og sagði hann mér sjálfr, að sér hefði verið gefin hann í tannfé, eg fekk hann þar í sumar er eg var þar á ferðinni, fyrir 15 kr. sem er næsta lítið verð.
Main information
Donor: Árni Ólafsson Thorlacius
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 3434
"Museumnumber b": 1890-72
Dimensions
62.5
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Spónn