Fatakista

1830 - 1870
In preservation at
National Museum of Iceland
Fatakista, hólfkista, útlend. 78 cm breið, 39,5 cm há upp að efri brún loks og neðst er kistan 33 cm djúp en breikkar uppávið og við lok er hún 39,5 cm djúp. Hún er grænmáluð með skrautmáluðum blómsveig á framhlið. Brúnir eru svartmálaðar. Lokið er gert úr þremur fjölum og er eilítið kúpt. Fjalirnar eru festar með trétöppum. Fjalirnar í lokinu eru orðnar lausar og gleitt er á milli þeirra. Málning er mjög máð af lokinu. Tvær járnlamir, ryðgaðar. Önnur þeirra er brotin og hin er laus frá kistu. Lokið er því laust frá kistunni. Á kistunni framanverðri er járnlæsing, ryðguð. Lykill fylgir ekki. Járnhöldur eru á hvorri hlið kistunnar. Á bakhlið hennar er skorið: XVII. Botninn er úr tveimur fjölum og gleitt er á milli þeirra. Kistan er ómáluð að innan. Vinstra megin efst í kistunni er lítið hólf með loki. Kistan er úr búi sr. Páls Jónssonar í Viðvík (f. 1812, d. 1889). Gefandi, Guðrún Ingólfsdóttir, Grettisgötu 6 Rvk., fékk kistuna frá dótturdóttur Páls (?) Sigríði Þorláksdóttur. Kistan þarfnast viðgerðar.

Main information

Dating
1830 - 1870
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1990-71
Dimensions
39.5 x 78 x 0 cm Lengd: 39.5 Breidd: 78 Hæð: 0 cm
Place
Staður: Viðvíkurkirkja, Kirkjan, 551-Sauðárkróki, Skagafjörður, Viðvíkursveit, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Fatakista
Depiction:
Blóm, sem skraut

Place of origin

65°45'59.0"N 19°16'40.2"W