Líkan, eftirlíking, skráð e. hlutv.

In preservation at
National Museum of Iceland
Líkan af rennismiðju,
sem smíðað er úr furu og neglt saman með litlum járnnöglum. Lengd
þess 29,2 cm, hæð 24,7 cm og breidd 16,5 cm. Aðalhlutinn ílangur
stóll, tvær láréttar fjalir sem snúa brúnum upp og niður og nokkurt bil
á milli, eru þær festar um annan enda á lága stoð og um hinn endann á háan
gálga, stólpa með þverslá að ofan. Laus gálgi er settur milli hinna
láréttu langfjala, úr honum tekið að neðan og hvílir hann á skörunum, en
gat haft gegnum stúfinn og þar stungið fleyg. Á gálgum báðum að innan
og ofarlega gengur út tittur úr járni, við þessa titta er fest kerlingunni
og hlutnum sem renndur er, Kerlingin er sívalur stautur, lengd liðlega
12 cm, þvermál 2,5 cm, með þremur járntittum á öðrum enda, sem reknir eru
ekki all fjarri brún, og bil jöfn að kalla, á miðjum enda hinu megin er
grunn hola. Frá örmunum á þverslánum liggja að neðan spelar á ská
að stólpunum. Líkaninn fylgir sívalur tréþollur, 18,4 cm á lengd,
1,9 cm að þvermáli, með grunnri holu í miðju endana.
Gert hefur Elín Bjarnadóttir,
Heiði á Síðu.
Main information
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1963-77
Dimensions
29.2 x 24.7 x 16.5 cm
Lengd: 29.2 Breidd: 24.7 Hæð: 16.5 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Líkan, eftirlíking, skráð e. hlutv.