Trafakefli

1600 - 1700
In preservation at
National Museum of Iceland
Stórt trafakefli: það er úr eik, og holað innan sem stokkur: yfir því er hvelft lok gagnskorið,viðargrein með leggjum og blöðum: undir það er negld fjöl eða stétt, sem stendur út af, en það mun vera síðar gjört: annað handfangið er mannshönd krept í lófann, þvert yfir úlfliðinn er skorin hnútarós vel gjörð. Hitt handfangið er flatur hnúður: ofan á hann er skorinn hnútur, en að neðan er sexblaðarós, og hringur yfir blöðin. Á báðum hliðum á keflinu er höfðletur, og alt í kring og utan á hneiðnum eða handfanginu, sem er þannig: „Vertu reblum vafinn dáða, víki skaðinn, eigðu keblinn, kvendið dáða mig kistu í staðin. Helga Magnúsdóttir.“ Höfðaletrið er fallegt og líkist helzt gotnesku letri. Allur skurður á keflinu er vel gjörður, það er ekki yngra en frá seinni hluta 17. aldar, getur verið eldra.

Main information

Dating
1600 - 1700
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 956 "Museumnumber b": 1873-39
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Trafakefli