Trafaaskja

In preservation at
National Museum of Iceland
Trafaöskjur, erlendar, úr tré og málaðar utan. Eru þær sporlaga, smíðaðar úr furu, með tágaseymi, og neglt með tittum úr tré við brúnir. Hæð við lok 8,2 cm. Í loki og botni plötur, lokhliðar úr einni þynnu en að neðan eru tvær þynnur í hliðum. Grunnur er hafður dökkblár, hvítar rákir með brúnum á loki og neðst á öskjum, á miðju lokinu má sjá mynd af ref er ríður gæs, og tré í kring, litir hvítt og rauðbrúnt, en á hliðar á öskjunum eru málaðir blómstrengir með hvítum lit, rauðbrúnum, grunnum, bláum og gulbrúnum. Lítið eitt hefur kvarnast úr við brúnir, málningin eydd nokkuð og blettir á, seymi hefur bilað og negling er styrkt með líkum járnnöglum. Álfheiður Þorsteinsdóttir, kona Guðmundar Snorrasonar, sem lengi bjó að Fossgerði í Jökuldal, gaf Ingibjörgu öskjurnar árið 1930. Þá var hún um áttrætt, og átti heima að Kirkjubæjarklaustri. Ingibjörg var hjá þeim hjónum nokkur ár í bernsku, og hélt tryggð við þau. Samanber meðfylgjandi blað.

Main information

Object-related numbers
"Museumnumber b": 1964-51
Dimensions
41.6 x 15.5 x 27 cm Lengd: 41.6 Breidd: 15.5 Hæð: 27 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Trafaaskja