Sverð

1300 - 1400
In preservation at
National Museum of Iceland
Sverð með löngum hjöltum: brandurinn er einkanlega mjög ryðbrunninn, og vantar framan af honum einn þriðja part hér um bil, en það sem eptir er, er 17 þuml.: hann er nær 2 þuml. á breidd upp við hjöltin. Brandurinn á þessu sverði hefir verið þunnur og breiður og nokkuð líkur fornum sverðum í laginu. Laut gengur fram eptir honum miðjum, og eggteinar beggja megin. Hjöltun eru 8 1/2 þuml. á lengd, aptari hluti sverðsins er minna ryðbrunninn: meðalkaflinn hefir verið nær 5 þuml. á lengd, og svo stór járnhnúður á að aptan: hann er hnöttóttur, en þó með 6 flötum. Sverðstanginn er flatur, og nokkuð breiður, og gengur hann upp í gegnum járnhnúðinn, og er hnoðaður að aptan. Ekkert sést eptir, hvað verið hefir utan um meðalkaflann. Það er alt eyðilagt. Sverð þetta fannst á Jökuldalsheiði, upp undan Hvanná, þar í rauðu moldarflagi, og voru hjöltun niðri í jörðunni, en fremri hlutinn af sverðinu upp úr, og þess vegna er hann meira eyðilagður. Eptir laginu á aptari hluta sverðsins og hjöltunum mun það vera frá 14. öld, og getur verið frá fyrra hluta hennar.

Main information

Dating
1300 - 1400
Object-related numbers
Museumnumber a: 982 "Museumnumber b": 1873-65
Dimensions
64 x 22 cm Lengd: 64 Breidd: 22 cm
Place
Staður: Hvanná 1, Múlaþing, Jökuldalur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Keywords
Keyword: Sverð
References
Staðsetning stafrænna gagna í heimildasafni: Q:\7500-Norður-Múlasýsla\Hvanná 1 - 7504\1873-65

Place of origin

65°22'4.0"N 14°48'21.0"W