Kambur, f. hár
1100 - 1300

In preservation at
National Museum of Iceland
Höfuðkambur úr elgshorni eða beini, l. 13,7 cm., br. 6-6,1 cm., Þ. um miðju 0,4 cm. og eru negldar þynnur beggja vegna á, 10 cm. langar og 2,8 cm. að breidd, með strikuðum bekkjum langretis, og eru þjettnegldar með messingarnöglum, sem hafa litað þær grænar. Þessar þynnur eða okar utaná eru til styrktar og til þess að halda saman þeim 4 hlutum, sem kamburinn auk þeirra er smíðaður úr og settir eru hver við annars rönd. Eptir að búið hefur verið að negla okana á hafa tennurnar verið sagaðar í kambinn: þær virðast hafa verið um 1,5 cm. að lengd og mjög fínar, um 8 á cm. Á 5 cm. löngu bili hafa þær náð inn að okunum beggja megin. en síðan 2 cm. löng bil við báða enda beggja megin með styttri tönnum og þó ójöfnum, eru sagðar mislangt uppí svo að framkoma stallar með ákveðinni lögum 1) (lögunin teiknuð.SA.). Beggja vegna sá nú stór skörð í kambinn og tennurnar virðast lítið eitt slitnar. - Við annan enda er gat. Endabrúnirnar er með útskornum sýlingum. -Virðist útlendur að uppruna og frá fornöld 2). Fanst í jörðu við bæinn á Útskálum. -Sbr. nr. 2793, 3332, 3364, 4541. 1) Sbr. t.d. 447 í Norske Olds. of O. Rygh. 2) Sbr. Sveriges medeltid of Hans Hildebrand I. 565-67.
Main information
Dating
1100 - 1300
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 1207
"Museumnumber b": 1877-19
Dimensions
13.7 x 6.1 x 0.4 cm
Lengd: 13.7 Breidd: 6.1 Hæð: 0.4 cm
Place
Staður: Útskálar, 250-Suðurnesjabæ, Suðurnesjabær
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Keywords
Keyword: Kambur, f. hár
