Grímubúningur

1956
In preservation at
Akureyri Museum
Grímubúningur Lína Langsokkur. Búningurinn er stór bolur/skyrta, heimasaumuð. Faldurinn er handsaumaður upp og frekar efnismikill. Á bolinn er saumaður hvítur vasi sem á er skrifað með svörtum penna, Lína Langsokkur. Bolurinn er blár í grunninn með gulgrænu og rauðu mynstri í laginu eins og e.k. stór blóm. Ein ferköntuð ljós tala aftan á hálsmáli. Einnig fylgir búningnum hárkolla, appelsínugult/rauðleitt ullargarn, fest á tauefni , greitt í tvær fléttur. Innan í fléttunum er vír svo þær geta staðið upp í loftið til beggja hliða. Blátt efni í slaufum um flétturnar. Búninginn átti Þóra Þórleifsdóttir. Hún varð stúdent frá MA árið 1956 og var þessi búningur saumaður fyrir grímuball í skólanum á loka árinu hennar. Hún saumaði búninginn með góðri hjálp frá Friðfinnu Hrólfsdóttur, klæðskera. Þóra setti bómull í báðar kinnar, málaði fullt af freknum á sig og enginn þekkti hana í þessu gervi.

Main information

Dating
Age: 1956
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2026-12
Dimensions
70 x 70 cm
Place
Site of use: Staður: Menntaskólinn á Akureyri, Eyrarlandsvegur 28, 600-Akureyri, Akureyrarbær, Brekkan, Ísland
Record type
Keywords
Keyword: Grímubúningur
Keyword:
Hárkolla
Depiction:
Saga

Place of origin

65°40'35.1"N 18°5'35.1"W