Reykjarpípa

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1291. Reykjarpípa. Hún er sögð "kínversk" ópíumpípa, sem Jón Sighvatsson, bóksali í Jómsborg, átti. – Þegar hinn franski ræðismaður Frakka í Reykjavík, Brillouin, dvaldist hér í Eyjum á árunum 1913-1914 við þá ætlun sína, að byggja fiskimjölsverksmiðju á Eiðinu, kynntist hann Jóni bóksala Sighvatssyni og konu hans, frú Karólínu Oddsdóttur, með því að ræðismaðurinn bjó hjá þeim í Jómsborg (nr. 9) við Víðisveg, meðan hann dvaldist í kauptúninu. Hann gaf Jóni bóksala þessa pípu að skilnaði. - Þorsteinn Jónsson (Johnson), bóksali í Eyjum, sonur hjónanna í Jómsborg, erfði pípuna eftir föður sinn og gaf hana Byggðarsafninu. "

Main information

Object-related numbers
1291
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Reykjarpípa
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.