Oblátudósir

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1256. Oblátudósir, oblátubuðkur, bakstursbaukur, bakstursdósir. Á oblátudósum þessum stendur ártalið 1655. Þær segja sína sögu. Þessar öldruðu oblátudósir eru gjöf til Byggðarsafnsins frá hjónunum frú Rebekku Ágústsdóttur Gíslasonar, Valhöll (nr. 43) við Strandveg, og Sigurðar Ólafssonar, verkfræðings í Reykjavík. Frúin er dótturdóttir Þorsteins héraðslæknis Jónssonar í Landlyst og konu hans frú Matthildar Magnúsdóttur. Jafnframt er frú Rebekka Ágústsdóttir sonardóttir Gísla kaupmanns Stefánssonar í Hlíðarhúsi og konu hans frú Soffíu Andersdóttur frá Stakkagerði. Gísli kaupmaður var sonur Stefáns bónda og stúdents í Selkoti undir Eyjafjöllum Ólafssonar bónda þar og gullsmiðs Jónssonar. Kona Ólafs gullsmiðs var frú Guðlaug húsfreyja í Selkoti Stefánsdóttir prests í Laufási Einarssonar. Frú Guðlaug Stefánsdóttir húsfr. í Selkoti eignaðist oblátudósir þessar um 1780. Þá voru um það bil 15 ár liðin frá því, að Miðbæliskirkja var lögð niður . Það var gert með konungsbréfi 17. maí 1765. Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsi í Eyjum eignaðist dósirnar mörgum árum eftir að amma hans féll frá. Ágúst sonur hans í Valhöll erfði þær eftir föður sinn. Hjónin frú Rebekka Ágústsdóttir og Sigurður Ólafsson færðu Byggðarsafninu þessa merku gjöf og þennan gagnmerka hlut til minningar um son sinn, Ágúst Gunnar, sem þau misstu tvítugan að aldri. Hann var fæddur 12. ágúst 1928 og fórst í flugslysi 27. marz 1948. Á lokinu stendur skráð á latínu: ,,Homini larga Flendi Materia ubiq(ue) est”, sem lærðir menn segja að þýði: Manninum gefst alls staðar nægilegt harmsefni. Gizkað er á, að þetta sé ritningargrein úr Vulgata, sem er latnesk biblíuþýðing. Letrið á framhlið oblátudósanna kvað vera hebreska og þýða Jehova. TOS er eflaust skammstöfun á nafni hins upprunalega gefanda, Tómasar Oddssonar, samkvæmt Vísitasíubók Miðbæliskirkju, sem enn kvað vera geymd í Danmörku. "

Main information

Object-related numbers
1256
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Oblátudósir
Keyword:
Oblátubaukur
Keyword:
Bakstursbaukur
Keyword:
Bakstursdunkur
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.