Rúmfjöl

1873
In preservation at
National Museum of Iceland
Útskorin rúmfjöl. Á framhlið hennar eru tvær höfðaleturslínur meðfram brúnum. Á milli þeirra fyrir miðju er hringlaga flötur með stöfunum „hþd“. Umhverfis flötinn er skreyti sem meðal annars samanstendur af þríhyrningum. Sitt hvorum megin við hringflötinn eru skornir bylgjuteinungar, hvor um sig myndar fjóra vafninga. Rúmfjölin hefur verið bæsuð á einhverjum tímapunkti, en þó aðeins á hluta bakhliðar. Á bakhlið er festing á annarri skammhliðinni með lykkju til að hengja fjölina upp (virðist vera að hún hafi verið hengd langsum en ekki þversum). Þó nokkuð er af nöglum í fjölinni sem búið er að slétta á bakhlið. Ekki er vitað hverjum upphafsstafirnir tilheyrðu. Álestur á rúmfjöl: vertuifirogaltumkring medeilifriblessanþinni sieugudseinglarsa mannihring sænginniifirminni anno atian hundrud siötiu þriu Þarna er skorin hin þekkta bæn úr sálminum Endar nú dagur eftir Sigurð Jónsson frá Presthólum og ártalið 1873 í höfðaletri: Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Upplýsingar frá gefendum: Tjarnargata 14 í Reykjavík var fjölskylduhús. Þar bjuggu Sigríður Magnúsdóttir (f. 1886-d.1952) með eiginmanni sínum prófessor Ólafi Lárussyni (f.1885-d.1961). Einnig bjuggu þar tvær systur hennar Ingunn Magnúsdóttir (f.1889-d.1943) og Lára Magnúsdóttir (f.1892-d.1961). Þær systur voru allar barnlausar, en fjórða systirin Halldóra MÁLFRÍÐUR Magnúsdóttir Einarsson (f.1894, d.1946) eignaðist fimm börn með eiginmanni sínum Agli Einarssyni (f. 1894, d. 1986). Elsta dóttir þeirra Katrín Sigríður Egilsdóttir (f.1923, d. 2001) fór 12 ára gömul til móðursystur sinnar Sigríðar og Ólafs og fór í Verzlunarskóla Íslands. Hún leit á þau sem fósturforeldra sína alla tíð. Katrín giftist Vilhjálmi Jónssyni (f. 1919, d. 2005). Þjóðminjasafnið tók árið 2025 til varðveislu rúmfjölina ásamt nokkrum öðrum munum úr dánarbúi dóttur þeirra, Sigurlaugar Vilhjálmsdóttur (f.1953, d. 2024): bekkur (Þjms-2025-13-1), málverk (Þjms 2025-13-2), hilla (Þjms-2025-13-3), askur (Þjms 2025-13-4) og kaffikanna (Þjms-2025-13-6).

Main information

Dating
Age: 1873
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 2025-13-5
Dimensions
17,5 cm 125,3 m
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Rúmfjöl