Askur

1879
In preservation at
National Museum of Iceland
Útskorinn askur. Askurinn er úr 6 stöfum og er með þrjár viðargjarðir, ein á sitt hvorum kanti hans og ein fyrir miðju. Á lok hans er skorið út skreyti og ártalið 1879. Stafirnir eru óskreyttir. Á lokið eru skornar út greinar eða jurtateinungar sem liðast og sveigja upp á sig, eins beggja megin við miðju. Á mitt lokið er grafið ártalið 1879, hjarta og munstur sem samanstendur af mörgum samsíða hallandi línum með strikum að ofan og neðan. Stærra eyrað er frekar laust. Askurinnn hefur verið bæsaður að utan og innan á loki. Hann hefur síðan verið lakkaður, einnig að innan. Innan á loki má á einum stað sjá leifar af lími í einni sprungunni. Innan við minna eyrað hefur brotnað úr askinum og þar glittir í beran nagla. Lengd mæld eyrna á milli: 21 cm, þvermál: 15 cm, hæð: 14,3 cm. Askurinn var tekin inn í safneign Þjóðminjasafns Íslands árið 2025 ásamt öðrum gripum, þ. á m. öðrum útskornum gripum. Upplýsingar frá gefendum: Tjarnargata 14 í Reykjavík var fjölskylduhús. Þar bjuggu Sigríður Magnúsdóttir (f. 1886, d.1952) með eiginmanni sínum prófessor Ólafi Lárussyni (f.1885, d.1961). Einnig bjuggu þar tvær systur hennar Ingunn Magnúsdóttir (f. 1889, d. 1943) og Lára Magnúsdóttir (f.1892, d.1961). Þær systur voru allar barnlausar, en fjórða systirin Halldóra MÁLFRÍÐUR Magnúsdóttir Einarsson (f. 1894-d.1946) eignaðist fimm börn með eiginmanni sínum Agli Einarssyni (f. 1894-d. 1986). Elsta dóttir þeirra Katrín Sigríður Egilsdóttir (f.1923, d. 2001) fór 12 ára gömul til móðursystur sinnar Sigríðar og Ólafs og fór í Verzlunarskóla Íslands. Hún leit á þau sem fósturforeldra sína alla tíð. Katrín giftist Vilhjálmi Jónssyni (f. 1919, d. 2005). Árið 2025 tók Þjóðminjasafnið til varðveislu askinn ásamt fleiri muni úr dánarbúi dóttur þeirra ,Sigurlaugar Vilhjálmsdóttur (f. 1953, d. 2024): bekk (Þjms-2025-13-1), málverk (Þjms 2025-13-2), hillu (Þjms-2025-13-3), rúmfjöl (Þjms 2025-13-5) og kaffikönnu (Þjms-2025-13-6).

Main information

Dating
Age: 1879
Object-related numbers
Museumnumber a: 2025-13-4
Dimensions
14,3 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Askur
Keyword:
Útskurður