Hilla

1925
In preservation at
National Museum of Iceland
Útskorinn hilla. Á framhlið hillunnar er skorið út jurtaskrautverk með bylgjuteinungum. Aftan á hillunni eru lítil málmstykki með götum til að hengja hilluna upp. Hillan er lökkuð svört. Á miðri framhlið er skorið út hringlaga form með ártalinu 1925. Útskurðurinn minnir mjög á útskurðinn á bekk númer Þjms 2025-13-1 sem fjallað er um hér að neðan. Hillan fylgdi bekknum og leiða má líkur að því að hún sé skorin út af sömu manneskju. Samkvæmt upplýsingum frá gefendum var bekkurinn skorinn út af Ingunni Magnúsdóttur (f. 1889, d. 1943) og því er mögulegt að hillan sé einnig eftir hana. Upplýsingar frá gefendum: Tjarnargata 14 í Reykjavík var fjölskylduhús. Þar bjuggu Sigríður Magnúsdóttir (f. 1886-d. 1952) með eiginmanni sínum prófessor Ólafi Lárussyni (f. 1885-d. 1961). Einnig bjuggu þar tvær systur hennar Ingunn Magnúsdóttir (f. 1889-d. 1943) og Lára Magnúsdóttir (f.1892-d.1961). Sigríður sá á ferð sinni í Kaupmannahöfn málverk af konu í útsaumuðum sófa og ákvað að gera svipaðan sófa. Þegar heim var komið hófst hún handa og saumaði áklæðið/teppið með einhverri hjálp frá Láru systur sinni. Ingunn sá um útskurðinn. Þær systur voru allar barnlausar, en fjórða systirin Halldóra MÁLFRÍÐUR Magnúsdóttir Einarsson (f. 1894-d.1946) eignaðist fimm börn með eiginmanni sínum Agli Einarssyni (f. 1894-d. 1986). Elsta dóttir þeirra Katrín Sigríður Egilsdóttir (f. 1923-d. 2001) fór 12 ára gömul til móðursystur sinnar Sigríðar og Ólafs og fór í Verzlunarskóla Íslands. Hún leit á þau sem fósturforeldra sína alla tíð. Katrín giftist Vilhjálmi Jónssyni (f. 1919 - d. 2005). Við andlát þeirra hjóna erfði Sigurlaug (f. 1953-d. 2024) dóttir þeirra sófann/bekkinn. Ákveðið var að eftir hennar dag færi best á að hann færi á safn. Þjóðminjasafnið tók árið 2025 til varðveislu bekkinn og hilluna og nokkra aðra muni úr dánarbúi Sigurlaugar Vilhjálmsdóttur að auki: málverk (Þjms 2025-13-2), ask (Þjms 2025-13-4), rúmfjöl (Þjms 2025-13-5) og kaffikönnu (Þjms-2025-13-6).

Main information

Dating
Age: 1925
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 2025-13-3
Dimensions
168 x 180 x 66 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Hilla
Keyword:
Útskurður