Mjólkurkanna

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"806. Kanna. Þetta er ofurvenjuleg mjólkurkanna, sem á sér þó sérlega sögu. Húsið nr. 39 við Heimagötu í Vestmannaeyjakaupstað hét Bólstaðarhlíð. Það var byggt 1924. Hjónin, sem byggðu það, voru Björn Bjarnason vélstjóri frá Hlaðbæ, sem var ein af Vilborgarstaðajörðunum, og frú Ingibjörg Ólafsdóttir frá Eyvindarholti undir Eyjafjöllum. Björn Bjarnason var fæddur og skírður árið 1893. Foreldrar hans voru Bjarni útgerðarmaður Einarsson bónda á Yzta-Skála og k. h. Halldóra Jónsdóttir bónda Einarssonar á Yzta-Skála. Móðir Halldóru var Kristín Björnsdóttir prests í Holti (1862-1874) Þorvaldssonar prests og sálmaskálds Böðvarssonar. Skírnarathöfn í þessari ætt var helgur atburður, sem framkvæmdur var að jafnaði heima. Þá var skírnarvatnið borið fram í könnu þessari. Hún var ættargripur. Björn og Ingibjörg, hjónin í Bólstaðarhlíð, erfðu könnuna eftir hjónin í Hlaðbæ, foreldra Björns. Þau hjón eignuðust átta börn, sem öll voru skírð heima. Þá var skírnarvatnið borið fram í könnu þessari. Þannig á þessi gamla kanna merka sögu. Frú Ingibjörg Ólafsdóttir í Bólstaðarhlíð gaf Byggðarsafninu könnuna til minnis um hinar helgu athafnir."
Main information
Recorder: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Owner: Ingibjörg Ólafsdóttir
Donor: Ingibjörg Ólafsdóttir
Owner: Bjarni Einarsson
Owner: Björn Bjarnason
Owner: Halldóra Jónsdóttir
Owner: Ingibjörg Ólafsdóttir
Donor: Ingibjörg Ólafsdóttir
Owner: Bjarni Einarsson
Owner: Björn Bjarnason
Owner: Halldóra Jónsdóttir
Object-related numbers
806
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Mjólkurkanna
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.