Askur

1810 - 1830
In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "714. Askur með fagurlega útskornu loki. Hann er sagður vera um 150 ára gamall. Upprunalega er askur þessi frá Sléttabóli í Suðursveit. A sínum tíma var hann gefinn prestsfrúnni á Kálfafellsstað í sömu sveit, mad. Helgu Skúladóttur, konu séra Péturs Jónssonar sóknarprests þar. Askar voru helzt smíðaðir úr góðum rekaviði eins og þessi askur. Til þess að herða viðinn og gera askinn bragðlegri helltu hreinlætiskonur í þá nýja sjóðandi sortulyngsseiði og lét það standa í þeim 23 dægur. Víða í íslenzkum sveitum var spónamatur etinn úr öskum fram að síðustu aldamótum og fram yfir þau. Þá tóku stóru grautarskálarnar við. Hjónin, frú Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen og Sigfús M. Johnsen gáfu ask þennan Byggðarsafninu en frúin erfði hann eftir foreldra sína á Kálfafellsstað. "

Main information

Dating
Estimated Age: 1810 - 1830
Object-related numbers
714
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Askur
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.