Skilvinda, til mjólkurvinnslu

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "698. Skilvinda (teg. Rev. perm.). Þessi skilvinda er ein hinna elztu, sem keypt var til Eyja. Hún var keypt á fyrstu árum aldarinnar. Hjónin á Hrauni (nr. 4) við Landagötu, frú Solveig Jónasdóttir og Jón bókavörður Einarsson, áttu hana. Jón var faðir hins kunna Eyjamanns, Þorsteins skipstjóra Jónssonar í Laufási, og frú Solveig var stjúpmóðir hans. (Sjá Formannsævi í Eyjum eftir Þ. J.). Frú Solveig Ólafsdóttir frá Þinghól (nr. 19 við Kirkjuveg) gaf Byggðarsafninu skilvinduna. Foreldrar hennar, hjónin í Þinghól, frú Margrét Sigurðardóttir og Ólafur Auðunsson, útgerðarmaður, sonur Solveigar Jónasdóttur, notuðu skilvinduna eftir daga hjónanna á Hrauni."

Main information

Object-related numbers
698
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.