Rokkur

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: ""619. Rokkur. Þetta er elzti rokkurinn, sem Byggðarsafnið á, enda ber brúðan þess vitni. Þennan rokk áttu upprunalega bóndahjónin í Þórlaugargerði, Jón Austmann Jónsson prests Austmanns að Ofanleiti og frú Rósa Hjartardóttir. Jón Austmann yngri var fæddur árið 1814. Hann lézt 1888. Sonur þeirra hjóna var Hjörtur bóndi í Þórlaugargerði. Hann var kvæntur frú Guðríði Helgadóttur frá Stóra-Gerði í Eyjum. Hún missti þennan mann sinn við slys í Hellisey sumarið 1883. Eina dóttur áttu þau, sem Rósa hét. Hún erfði þennan rokk, og mörgum árum eftir fráfall hennar eignaðist Byggðarsafnið hann, með því að frú Guðríður Helgadóttir, móðir hennar, giftist síðar Einari Sveinssyni í Þórlaugargerði. Sonur þeirra var okkar góði samborgari Hjörtur Einarsson á Geithálsi (nr. 2) við Herjólfsgötu. Frá konu hans, frú Katrínu Sveinbjarnardóttur, barst Byggðarsafninu rokkurinn.

Main information

Object-related numbers
619
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Rokkur
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.