Tína, ílát, óþ. hlutv.

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "612. Hnyklatína. Þessi hnyklatína er mjög gömul. Hana átti og notaði síðast frú Salvör Þórðardóttir, stjúpa Árna gjaldkera Filippussonar í Ásgarði (nr. 29 við Heimagötu). Frú Salvör var seinni kona Filippusar ferjumanns og bónda Bjarnasonar í Háfshól í Holtum. Fyrri kona Filippusar ferjumanns, frú Guðrún Arnadóttir, dannibrogsmanns og bónda Jónssonar, átti tínu þessa. Hún var fædd að Stóra-Hofi á Rángárvöllum 26. okt. 1833 og lézt árið 1866. Frú Guðrún var unglingsstúlka, þegar hún eignaðist tínuna. Frú Salvör Þórðardóttir var fædd 16. nóv. 1831. og andaðist í Ásgarði við Heimagötu 17. nóv. 1911. Dætur Árna Filippussonar, stjúpsonar hennar, frú Guðrún og frú Katrín, gáfu Byggðarsafninu hnyklatínuna. "

Main information

Object-related numbers
612
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.