Klukka, skipsklukka

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "590. Skipsklukka. Þessa skipsklukku sendi Friðrik Ólafsson, sem var skipherra á varðskipum ríkisins í 6 ár á árunum 1925-1934. Síðar var hann skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík. Björgunar og varðskipið Þór strandaði á Sölvabakkaskerjum utanvert við Blönduós 21. des. 1929. Friðrik Ólafsson bjargaði ýmsum hlutum úr varðskipinu, m. a. þessari klukku, sem hann sendi Byggðarsafninu að gjöf. Klukka þessi mætti minna Eyjafólk á það mikla framtak, er Eyjamenn keyptu þetta fyrsta björgunar og varðskip íslenzku þjóðarinnar til landsins árið 1920. "

Main information

Object-related numbers
590
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Klukka, skipsklukka
Keyword:
Skipsklukka
Keyword:
Klukka
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.