Öxi, skráð e. hlutv.

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "495. Öxi. Öll er hún úr járni gjörð með krók á skafti. Þegar Helgi tónskáld og lúðrasveitarstjóri Helgason hvarf héðan frá tónlistarstörfum árið 1921 (Sjá Blik 1972), skildi hann m. a. eftir öxi þessa. Helgi Helgason var smiður góður og m. a. var hann kunnur skipasmiður. Hann hafði með sér til Eyja ýmisleg smíðaáhöld og stundaði hér smíðar öðrum þræði með tónlistarstarfinu. Hann bjó hér í Ásgarði hjá hjónunum Árna gjaldkera Filippussyni og frú Gíslínu Jónsdóttur. Þar skildi hann eftir öxina, þegar hann flutti, gaf hana Árna, sem einnig var góður smiður og stundaði þá handiðn á yngra aldursskeiði. Börn hjónanna gáfu öxina Byggðarsafninu. "

Main information

Object-related numbers
495
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.