Skaröxi

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "475. Skaröxi, stór og mjög gömul. Þessa sérlegu skaröxi átti Jón bóndi og smiður Austmann í Þórlaugargerði. Hann var sonur séra Jóns .J. Austmann sóknarprests að Ofanleiti. Fæddur var hann að Felli í Mýrdal árið 1814. Kona Jóns bónda hét Rósa Hjartardóttir. Sonur þeirra hjóna var Hjörtur Jónsson bóndi í Þórlaugargerði. Hann var fyrri eiginmaður Guðríðar Helgadóttur. Síðari maður hennar var Einar Sveinsson, bóndi í Þórlaugargerði og umsjónarmaður barnaskólans hér um árabil. Þau voru foreldrar Hjartar Einarssonar á Geithálsi, hins góðkunna samborgara okkar hér í kaupstaðnum. Frá þessu fólki er öxin gefin Byggðarsafninu. "

Main information

Object-related numbers
475
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Skaröxi
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.