Áttaviti, til siglinga

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "256. Áttaviti, lítill vökvaáttaviti í harðviðarstokk. Þessi áttaviti á sér markverða sögu. Hann mun vera fyrsti vökvaáttavitinn, sem keyptur var hingað til Vestmannaeyja. Þorsteinn Jónsson á Hrauni, þá formaður á áttæringnum Ísak, síðar kenndur við íbúðarhús sitt Laufás hér í bæ, keypti þennan áttavita um eða rétt eftir aldamótin og notaði hann á hinum fræga áttæring, sem hann hóf formennsku á. Síðan keypti Þorsteinn Jónsson fyrsta vélbátinn til Eyja, vélbátinn Unni VE 80, sem gerður var fyrst út hér á vetrarvertíð 1906. Þá notaði hann áttavita þennan og nokkrar vertíðir eftir það. Þegar síminn var lagður yfir sundið milli Heimaeyjar og lands síðla sumars 1911, hafði sjávarbotninn verið kannaður áður og lænur þar milli hraunklappa miðaðar m. a. með þessum áttavita. Hann var þá talinn hinn fullkomnasti og öruggasti í útvegsstöðinni. Síðan var strengurinn þræddur eftir lænunum eftir því sem tök voru á, og þá var þessi áttaviti notaður. Á gamalsaldri gaf Þorsteinn Jónsson, þá hinn kunni formaður og útgerðarmaður í Laufási um tugi ára, dóttursyni sínum, Ólafi Jónssyni, nú til heimilis að Ásbyrgi í Eyjum, áttavitann og hann gaf hann síðan Byggðarsafninu til minningar um afa sinn."

Main information

Object-related numbers
256
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.