Torfljár

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "386. Torfljár, einristutorfljár, merktur P. B. Torfljá þennan átti Pétur bóndi Benediktsson í Þórlaugargerði, síðan Jón bóndi sonur hans, og síðast Jón Guðjónsson frá Oddstöðum, fóstursonur hjónanna í Þórlaugargerði Jóns bónda Péturssonar og Rósu húsfreyju Eyjólfsdóttur (Sjá mynd í Bliki 1961, bls. 197). Blaðið á torfljá þessum smíðaði Sæmundur faðir Einars smiðs Sæmundssonar á Staðarfelli við Kirkjuveg (nr. 53), en skaftið smíðaði Pétur bóndi sjálfur. Ljárinn var um árabil notaður við torfristu á Ofanleitisbæjunum á síðari hluta 19. aldar og fram yfir aldamótin."

Main information

Object-related numbers
386
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Torfljár
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.