Rétt

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "369. Réttin. Líkan af sauðfjárréttinni gömlu, sem var á Eiðinu í Eyjum frá fyrstu landnámsárum þar að öllum líkindum. (á 10. öld). Réttin stóð á Þrælaeiði vestanverðu og var í daglegu tali Eyjafólks kölluð Almenningurinn. Um aldir gengu á Heimaey nokkur hundruð fjár. Í Almenningnum var féð réttað tvisvar eða þrisvar á ári og stundum oftar. Þá var þar mannmargt og glatt á hjalla. Réttin var notuð fram á fyrstu tvo áratugi þessarar aldar. Um og eftir 1920 tók sjórinn að brjóta niður Eiðið i aftökum, og brátt sundraði hann réttinni. Árið 1930 voru aðeins eftir nokkrar leifar hennar. Réttarlíkan þetta gjörði Kristinn Ástgeirsson frá Litlabæ með aðstoð tveggja aldraðra Vestmannaeyinga, sem dregið höfðu fé með Kristni í rétt þessari á yngri árum sínum, þeim Eyjólfi skipstjóra Gíslasyni, bóndasyni frá Búastöðum, og Guðjóni Sveinssyni Scheving, málarameistara, bóndasyni frá Steinsstöðum (Sjá Blik 1959). Vitað er með vissu af áreiðanlegum heimildum, hvaða jarðir notuðu hvern dilk réttarinnar, áttu hann frá fornu fari tveir eða þrír bændur saman. Vestmannaeyingafélagið Heimaklettur lét gera líkanið og gaf það síðan Byggðarsafninu. "

Main information

Object-related numbers
369
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.