Páll

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"365. Páll, stungupáll. Þetta gamla jarðyrkjutæki átti og notaði hér eða lét nota á sinni búskapartíð í Nýjabæ Þorsteinn bóndi og alþingismaður Jónsson. Ekkja alþingismannsins, Kristín húsfreyja Einarsdóttir (d. 1899) gaf Gísla gullsmið í Stakkagerði pálinn, er hann hóf búskap og jarðrækt í Stakkagerði um 1886. Sú saga fylgir pálnum, að Gísli gullsmiður og bóndi Lárusson hafi pælt fyrsta matjurtagarð sinn á lendum jarðarinnar með páli þessum. Pállinn er slitinn mjög og bendir það til mikillar notkunar, Þorsteinn Jónsson var alþingismaður Vestmanneyinga frá árinu 1875 til dauðadags 28. ágúst 1886. Mörgum árum eftir lát hjónanna í Stakkargerði, Gísla gullsmiðs og Jóhönnu húsfreyju Arnadóttur, barst pállinn Byggðarsafninu að gjöf. Brennimerktur Þ. J. "
Main information
Object-related numbers
365
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.