Belgur, skráð e. hlutv.

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"107. Kálfsbelgur - línuból. Mikil líkindi eru til þess, að kálfsbelgir hafi verið íslenzk línuból frá upphafi línualdar þeirrar, sem talin er hefjast seint á 15. öld (sumir nefna ártalið 1482). Belgurinn var fleginn af nýbornum kálfi sem mest heill og óskorinn. Síðan var belgurinn. verkaður og látinn liggja á blásteinsvatni. Settur var síðan spons í hvern skækil og tréklossi á strjúpann. Á honum var gat fyrir bólfærið. Á einum sponsinum var gat og hafður trétappi í. Þar var belgurinn blásinn upp. Væri um milliból að ræða, var bólfærið jafnan undið upp á belginn. Um leið og línustjórinn sökk til botns, vatt hann færið af belgnum. Kálfsbelgir voru einnig notaðir við lagvaði. (Sjá lagvað). Þennan línubelg bjó Austfirðingurinn Stefán Jónsson að Sléttabóli hér við Skólaveg (nr. 31), en hann er aldraður sjómaður af suðurfjörðum Austurlands, og m. a. hákarlaveiðimaður gamall og reyndur."
Main information
Object-related numbers
107
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Belgur, skráð e. hlutv.
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.