Lýsisanker

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "99. Ílar - þrír lýsisílar. Þessi lýsisílát kenndi séra Oddur Gíslason, prestur í Grindavík (1878-1894) íslenzkum sjómönnum að nota til að draga úr slysahættu á sjó. Séra Oddur Gíslason „hinn ötuli framkvæmdagarpur þessa málefnis”, eins og komizt er að orði um hann í góðri heimild, hélt fyrirlestur um slysavarnir á sjó í Vestmannaeyjum 2. febrúar 1889. Fyrirlestur prestsins var fjölsóttur í Eyjum og sýndi Eyjafólk mikinn áhuga þessu málefni, sem fjallaði einvörðungu um „bjargráð í sjávarháska”. (Sjá 6. árg. Fjallkonunnar árið 1889). Eftir þessa heimsókn séra Odds Gíslasonar til Eyja voru ílar almennt notaðir á skipum Eyjamanna. Bezt þótti hákarlalýsi til nota í ílana. Þeir voru ýmist bundnir á síður skipanna eða dregnir á eftir þeim, þegar stormar og stórsjóar steðjuðu að. Ílar þessir eru frá útgerð Ársæls Sveinssonar á Fögrubrekku."

Main information

Object-related numbers
99
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Lýsisanker
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.