Síldarfæla

In preservation at
Sagnheimar Folk Museum
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"66. Gervifiskur. Þetta tæki á uppruna sinn í Noregi. Af Norðmönnum höfum við lært að nota það eins og svo margt annað, sem lýtur að síldveiðum. Á norsku máli heitir tæki þetta skjelma (af nafnorðinu skjelm, þ. e. hrekkjalómur; gárungi). Þegar snurpað hafði verið og hin aðþrengda síldartorfa leitaði á munna nótarinnar, var gervifiski þessum stungið niður í sjóinn við nótarmunnann til þess að fæla síldina frá opinu, svo að hún tapaðist ekki út um það. Þessi gervifiskur er frá síldarútvegi Ársæls heitins Sveinssonar á Fögrubrekku (nr. 68 við Vestmannabraut) ."
Main information
Object-related numbers
66
Record type
Collection
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Síldarfæla
References
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.