Rúmábreiða

1938 - 1939
In preservation at
National Museum of Iceland
Rúmábreiða, ofin. Ábreiðan er röndótt, ofin með ullarbandi í brúnum litatónum. Endar eru faldaðir, en nokkuð hefur trosnað úr þeim. Þeir hafa verið lagaðir með tvinna á sumum stöðum. Um miðja ábreiðuna eru þrjú göt þar sem aðeins uppistaðan er eftir. Nokkuð er um slit á ábreiðunni eftir mikla notkun. Upplýsingar frá gefendum: Ábreiðan (ca. 122 x 280 cm) er ofin af móður okkar, Önnu Bergljótu Böðvarsdóttur (f. 1917, d. 1989) þegar hún var við nám í Húsmæðraskólanum að Laugalandi í Eyjafirði (1938 – 1939). Notað var jurtalitað garn í vefnaðinn. Mamma var mikil hannyrða- og prjónakona en settist ekki við vefstólinn aftur. Ábreiðan hafði lengi heiðurs sess heima og var beidd yfir sófann í stofunni eða allt þar til skemmdir fóru að verða of áberandi. Þá var hún lögð til hliðar að mestu. Afi okkar, Böðvar Magnússon (f. 1877, d.1966) átti ættir að rekja á Rangárvell: Faðir hans, Magnús Magnússon (f.1840, d. 1908) fæddist á Stokkalæk en flutti síðar að Austvaðsholti með móður sinni Vigdísi Guðmundsdóttur (f. 1821, d. 1899) Magnús giftist, 1864, Arnheiði Böðvarsdóttur (f. 1840, d. 1887) frá Reynivöllum. Þau hófu búskap á Bjalla á Landi og síðan í Holtsmúla á Landi þar sem Böðvar afi fæddist en hann var næst yngstur af 10 börnum þeirra. Þau fluttu að Úthlíð í Biskupstungum 1880. Þar dó Arnheiður 1887. Magnús flutti síðan að Laugarvatni með yngstu bornin þ.m.t. Böðvar afa og kvæntist þar Ragnheiði Guðmundsdóttur (f. 1841, d. 1914) sem einnig hafði misst maka sinn um sama leyti. Ragnheiður var móðir ömmu minnar Ingunnar Eyjólfsdóttur (f. 1873, d. 1969) en þau Böðvar giftust 1. 12. 1901. Allt um þetta og einnig tengslin við Keldur, sem voru margþætt, má lesa um í æfisögu Böðvars Magnússonar, „Undir tindum” útg. Norðri, 1953. Það mundi gleðja okkur systkinin ef ábreiðan henna mömmu fengi að lokum heimili á Keldum. Þjóðminjasafn Íslands tók við ábreiðunni árið 2025. Hana á að nota á bænum á Keldum sem rúmábreiðu þegar bærinn er opinn fyrir gestum og gangandi á sumrin. Á Keldum er sögufrægur torfbær af fornri gerð sem verið hefur hluti af húsasafni Þjóðminjasafnsins frá árinu 1946. Í safneign Þjóðminjasafns Íslands er varðveitt ljósmynd sem sýnir nemendur og kennar í Laugarvatnsskóla veturinn 1936-1937. Þar á meðal er mynd af Önnu Bergljótu Böðvarsdóttur. Númer myndar: Mms-23263.

Main information

Dating
1938 - 1939
Object-related numbers
Museumnumber a: 2025-64
Dimensions
280 x 122 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Rúmábreiða