Næla, skráð e. hlutv.

In preservation at
National Museum of Iceland
Silfurnæla, skjaldlaga. Ofarlega á nælunni framanverðri er kóróna og fyrir neðan hana tveir samliggjandi skildir. Á vinstri skildinum er skjaldarmerki Danmerkur sem samanstendur af þremur stikandi ljónum með kórónur á höfði ásamt níu hjörtum og á hægri skildinum er skjaldarmerki Íslands, fálkamerkið. Fyrir neðan skildina er ártalið 1907. Á nælunni er einnig jurtaskreyti. Á bakhlið er fastur pinni til að festa næluna við klæðnað.
Líklega var nælan gerð í tilefni af heimsókn Friðriks VIII Danakonungs til Íslands árið 1907.
Heimsókn Friðriks VIII Danakonungs til Íslands um sumarið 1907 er merkur atburður í Íslandssögunni. Alþingismannaförin til Danmerkur árið áður og vel heppnuð Íslandsferð konungs og ríkisþingmanna jók gagnkvæm kynni ráðamanna og skýrði sameiginlega hagsmuni. Það má segja að með þessum tveimur heimsóknum hafi hafist samningaferli sem síðar átti eftir að leiða til fullveldis Íslands 1918.
Brjóstnælan var geymd í kistli sem Þjóðminjasafnið tók til varðveislu árið 2025 ásamt tveimur öðrum nælum sem í honum voru. Kistillinn var gerður af Guðmundi Magnússyni (f. 1818, d. 1914) í Helludal í Biskupstungum. Hann var mikill hagleikssmiður og jafnvígur á tré og málm og jafnvel saumaskap. Síðustu æviár hans bjó Guðmundur hjá Steinunni Magnúsdótttur (f. 1875 d. 1959) sonardóttur sinni í Helludal og sennilega hefur kistill þessi komið í hennar eigu eftir hans dag. Síðustu æviár sín bjó hún hjá syni sínum Guðmundi Tómassyni (f. 1900, d. 1984 ) og konu hans Steinunni Gísladóttur (f. 1901, d. 1984) að Steinum í Grindavík og hefur þá kistillinn fylgt henni þangað. Eftir lát þeirra hjóna kom svo kistillinn í vörslu Steinunnar (f. 1930) dóttur þeirra sem gaf kistillinn ásamt þremur nælum sem í honum voru er hún tók við honum.
Kistillinn og hinar tvær nælurnar eru skráður undir númerinu Þjms. 2025-11.
Main information
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2025-11-4
Dimensions
3 x 2,2 x 0,6 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Næla, skráð e. hlutv.
Depiction: Kóróna
Depiction: Fálki
Keyword: Brjóstnæla
Depiction: Ljón
Depiction: Kóróna
Depiction: Fálki
Keyword: Brjóstnæla
Depiction: Ljón



